Vestfirðir: Óvissustig Almannavarna vegna veðurs

Ríkislögreglustjóri lýsir yfir nú í kvöld laust fyrir miðnætti óvissustigi Almannavarna vegna veðurs í samráði við lögreglustjóra í eftirtöldum umdæmum:  Vestfjörðum, Vesturlandi, Suðurnesjum, Vestmannaeyjum og Suðurlandi.  Appelsínugular viðvaranir Veðurstofunnar verða í gildi í fyrrgreindum umdæmum með mismunandi gildistíma eða frá 14:00 á morgun mánudag 30. janúar til þriðjudags 31. janúar kl. 8:00. 

Búið er að boða til samráðsfundar Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í fyrramálið þar sem farið verður yfir stöðuna og mögulegt viðbragð á þeim svæðum þar sem veðurspáin er slæm. Ekkert ferðaveður verður á Suðausturlandi, Vestfjörðum, Faxaflóa og Suðurlandi á morgun, mánudag og fram til þriðjudagsmorguns. Miklar líkur eru að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur.  

Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með færð á vegum á www.umferdin.is og veðrinu á vef Veðurstofunnar www.vedur.is.

Ef spár ganga eftir má gera ráð fyrir að Samhæfingarstöð Almannavarna verði virkjuð á morgun, mánudag.  

DEILA