Jöfnunarsjóður með framlög vegna samþættingar á þjónustu í þágu farsældar barna

Innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um úthlutun á framlagi til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar á þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2023.

Jafnframt samþykkti ráðherra tillögu um áætluð framlög til sveitarfélaga, sem byggjast á reglugerðinni fyrir árið 2023, að fjárhæð 1.100 milljónir króna.

Þetta er uppfærsla á reglugerð nr. 1455/2021 sem gildir einungis fyrir framlög ársins 2022. Fram kemur í 2. grein reglugerðarinnar með hvaða hætti framlög skulu reiknuð. Úthlutun byggist á fjórum forsendum sem allar hafa jafnt vægi:

  1. Fjöldi barna í hverju sveitarfélagi.
  2. Fjöldi barna með stuðning í leik- og grunnskóla.
  3. Fjöldi barna á lágtekjuheimilum.
  4. Fjöldi barna af erlendum uppruna.

Framlög verða enduráætluð í janúar 2023 þegar uppfærð gögn berast frá Hagstofu Íslands um fjölda barna á lágtekjuheimilum vegna tekna ársins 2021 og uppfærslu á fjölda barna með stuðning í leik- og grunnskóla.

DEILA