Brátt má brugga heima

Með frumvarpi til breytinga á áfengislögum er ráðgert að afnema bann við heimabruggun á áfengi til einkaneyslu.

Þetta kemur fram í samráðsgátt stjórnvalda en þar hefur Dómsmálaráðuneytið kynnt áfom þessa efnis.

Þó er gert ráð fyrir því að áfram verði óheimilt að framleiða áfengi til einkaneyslu með eimingu, en það er m.a. til samræmis við löggjöf á Norðurlöndunum.

Þá verður einnig áfram óheimilt að stunda heimabruggun í því skyni að selja afurðina, enda er þá um atvinnustarfsemi að ræða sem er leyfisskyld samkvæmt lögum og reglum þar að lútandi.

Á undanförnum árum hefur orðið til rík menning heimabruggunar, þá sérstaklega á bjór, samhliða vexti handverksbrugghúsa sem hafa hafið starfsemi sína um land allt.

Félög hafa verið stofnuð utan um heimabruggun áfengis til einkaneyslu, námskeið um slíka bruggun verið auglýst opinberlega og almenn umræða átt sér stað fyrir opnum tjöldum um athæfið.

Almenningur virðist lítt upplýstur um að heimabruggun áfengis til einkaneyslu feli í sér refsiverðan verknað, sem bendir til þess að réttarvitund almennings kunni að vera á skjön við hið lögfesta og fortakslausa bann í 4. gr. áfengislaga.

Því er talið tímabært að taka til skoðunar hvort enn séu rök fyrir því að skilgreina heimabruggun sem refsiverða háttsemi samkvæmt lögum.

DEILA