Landsdómsmálið

Út er komin hjá Bókafélaginu bókin Landsdómsmálið – Stjórnmálarefjar og lagaklækir eftir Hannes H Gissurarson.

Í kynningu á bókinni segir:

„Þjóðin varð fyrir miklu áfalli, þegar bankarnir hrundu allir í október 2008.

En fráleitt var að draga Geir H. Haarde forsætisráðherra einan til ábyrgðar á bankahruninu, eins og naumur meirihluti Alþingis gerði með því að leiða hann fyrir landsdóm. Málshöfðunin var niðurstaða stjórnmálarefja. Þótt landsdómur sýknaði Geir í öllum aðalatriðum, var einnig langsótt að halda því fram, að hann hefði brotið stjórnarskrána með því að setja hættu á bankahruni ekki á dagskrá ráðherrafunda.

Til þess var beitt lagaklækjum, ekki lögum. Í ljós kom, að þrír dómendur í landsdómi voru vanhæfir sökum fjármálavafsturs og annarra hagsmunaárekstra, auk þess sem málsmeðferð var á öllum stigum meingölluð. Neyðarlögin, sem Geir beitti sér fyrir, reyndust hins vegar gæfuspor. Margt óvænt kemur hér fram.“

DEILA