LIONS: ÓKEYPIS BLÓÐSYKURSMÆLING Á ÍSAFIRÐI

Lionsklúbbur Ísafjarðar býður Ísfirðingum og Vestfirðingum ókeypis blóðsykurmælingu i tilefni alþjóðadags sykursýki á morgun fimmtudaginn 17. nóvember með dyggum  stuðningi Hjúkrunar og Sjúkraliðafélags Vestfjarða.

Mælingin verður í andddyri Bónus og Nettós á milli kl 4-6.

Í fréttatilkynningu frá Lionsklúbbi Ísafjarðar segir:

„Þetta heilsuverkefni er alþjóðaverkefni Lions hreyfingarinnnar. Sykursýki er dulinn sjúkdómur sem fólk gengur með án þess að vita og hefur slæm áhrif á heilsuna. Þetta verkefni hefur verið undanfarin áratug.   Ísfirðingar tekið þátt i frá upphafi, og okkur þykir vænt um að Lionsklúbbur Ísafjarðar er með hæstu þátttöku hvert ár á landsvísu, og viljum við gera betur og allir hjartanlega velkomnir.

Vegna Covid19 hefur blóðsykursmælinging fallið niður síðustu tvö ár en verður nú að nýju.

Lionsklúbbur Ísafjarðar er einn sá elsti á landinu 65 ára og hefur verið ötull i gegnum árin með fjáraflanir til styrktar verkefna i heimabyggð. Félagar hafa verið mjög öflugir síðustu ár í skötuvinnslu  og er skötusala fyrir jólin aðal fjáröflun félagsins.“

Lionsklúbburinn hvetur fólk eindregið til að mæta  í mælinguna og þakkar jafnframt Hjúkrunar og Sjúkraliðafélagi Vestfjarða  fyrir veittan stuðning við þetta verkefni ár eftir ár.

DEILA