Bolungavík: jólabingó Sjálfsbjargar í dag

Jólabingó Sjálfsbjargar í Bolungarvík verður haldið í Félagsheimilinu í Bolungarvík laugardaginn 26. nóvember kl. 14:00. Veglegir vinningar verða í boði.

Aðgangseyrir 1.500 kr.
Aukaspjald 500 kr.

Posi verður á staðnum.

Krakkar úr Grunnskólanum munu selja veitingar í hléi.

Allir eru velkomnir!

DEILA