Bílvelta á Steingrímsfjarðarheiði

Frá Steingrímsfjarðarheiði.

Um kl. 17 var lögreglunni á Vestfjörðum tilkynnt um umferðarslys á norðanverðri Steingrímsfjarðarheiði. Í tilkynningu lögreglunnar segir að viðbragðsaðilar hafi þegar farið á vettvang. Bifreið hafði oltið út af veginum og var ökumaður einn í bifreiðinni. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á vettvangi og flutti ökumanninn til Reykjavíkur. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Vegurinn er ekki lokaður vegna slyssins.

DEILA