Veiðráðgjöf í loðnu lækkar um tæp 200 þúsund tonn

Leiðangurslínur rs. Árna Friðrikssonar (rauðar) og rs. Tarajoq (bláar) í ágúst -september 2022 ásamt dreifingu loðnu.

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli veturinn 2022/2023 verði ekki meiri en 218 400 tonn.

Ráðgjöfin kemur í stað upphafsráðgjafar upp á 400 000 tonn sem byggði á magni ókynþroska loðnu í haustmælingum 2021. Ráðgjöfin verður endurskoðuð að loknum mælingum Hafrannsóknastofnunar á stærð veiðistofnsins í janúar/febrúar eins og aflaregla strandríkja fyrir stofninn gerir ráð fyrir.

Þessi endurskoðaða ráðgjöf byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq á tímabilinu 27. ágúst til 29. september (sjá mynd). Um var að ræða umfangsmikla yfirferð og urðu litlar tafir vegna veðurs.

Hafís takmarkaði yfirferð nyrst á rannsóknasvæðinu, en ekki er talið líklegt að loðna hafi verið á svæðinu sem var sleppt. 

DEILA