Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði

 Íslandi eru 130 friðlýst svæði, þar af þrír þjóðgarðar.

Svæðin eru undir stjórn þriggja stofnana og umsjón með svæðunum og stjórnfyrirkomulag á þeim er því með ólíkum hætti.

Á undanförnum árum hefur farið fram umræða um tækifæri og áskoranir sem fylgt geta því að friðlýsa landsvæði á Íslandi. Samhliða umræðu um stöðu friðlýstra svæða hafa komið fram sjónarmið um aukna samþættingu og samræmingu stofnana sem hafa umsjón með svæðunum.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði starfshóp síðasta vor sem hafði það hlutverk að vinna skýrslu um stöðu og áskoranir í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum.

Í starfshópnum sem ráðherra skipaði voru Árni Finnsson, formaður, Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir og Sveinbjörn Halldórsson og var starfstími hans til 1. október sl. 

Starfshópurinn hefur dregið saman ýmis fyrirliggjandi gögn og aflað upplýsinga með samtölum og samskiptum við hagaðila, fulltrúa þeirra stofnana sem reka friðlýst svæði og þjóðgarða og önnur stjórnvöld og er í samantekt þeirri sem nú er til umsagnar í Samráðgátt að finna lykilþætti og áskoranir sem fram hafa komið hjá fulltrúum þeirra sem komu á fund hópsins eða sendu inn gögn.

DEILA