Syndum saman í nóvember

Þriðjudaginn 1. nóvember nk. munu ÍSÍ og Sundsamband Íslands setja Syndum – landsátak í sundi formlega af stað. Átakið mun standa yfir allan nóvembermánuð.

Átakið var sett á laggirnar á sama tíma á síðasta ári og var þátttakan gríðarlega góð. Landsmenn syntu samtals vegalengd sem samsvaraði hvorki meira né minna en 11,6 hringjum í kringum landið!. Markmiðið í ár er að fá enn fleiri til að vera með.

Landsátakið er hluti af verkefninu Íþróttavika Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við hreyfingarleysi meðal almennings. 

Allar upplýsingar er að finna á heimasíðu verkefnisins, www.syndum.is og á Facebook síðu þess. 

DEILA