Ólíklegt að Steingrímsfjarðarheiði lokist

Frá Steingrímsfjarðarheiði.

Vegagerðin segir í tilkynningu nú undir kvöldið um veðrið á Vestfjörðum á morgun að fyrir hádegi á morgun, sunnudag, verði á Steingrímsfjarðarheiði hríðarveður fram yfir hádegi, ólíklegt að vegurinn lokist en það verði hvasst fram eftir degi.

Ekki eru viðvaranir um færð á vegum annars staðar á Vestfjörðum. Um færð á Holtavörðuheiði segir að frá kl 8 í fyrramálið fram til kl 14 á morgun verði hríðarveður og vegurinn gæti lokast með stuttum fyrirvara.

DEILA