Bleiki dagurinn föstudaginn 14. október 2022

Föstudagurinn 14. október 2022 er Bleiki dagurinn. Hvernig væri nú að skipuleggja bleikt morgunkaffi í vinnunni eða heima fyrir? Einnig er tilvalið að klæðast bleikum fötum í tilefni dagsins. 

Heimili og vinnustaðir hafa verið dugleg við að smella einhverju góðgæti í ofninn og skreyta í tilefni dagsins.

Sé tíminn naumur má líka leita til þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem leggja Bleiku slaufunni lið með bleiku góðgæt.

Eða að hafa samband við Handknattleiksdeild Harðar á Ísafirði sem leggur söfnuninni lið með því að selja bleikar treyjur í samstarfi við Krabbameinsfélagið Sigurvon og Bleiku slaufuna.

DEILA