Álfadalur: bók um kynferðisofbeldi

Bókarkápan.

Að gefnu tilefni vill Sævar Þór Jónsson lögmaður fyrir hönd umbjóðenda sinna, afkomenda Jóns Hafsteins Oddssonar (Nonna) og Guðmundu Jónínu Guðmundsdóttur (Mundu), koma eftirfarandi á framfæri vegna útgáfu bókarinnar Álfadalur: Sönn saga um kynferðisofbeldi, þöggun og afleiðingar þess eftir Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur.

Eins og fram kemur í Bókatíðindum rekur höfundur sögu móður sinnar í bókinni, Sigurbjargar Oddsdóttur frá Álfadal á Ingjaldssandi sem þola mátti hræðilegt kynferðisofbeldi.

Með ofangreint í huga og fjölda ábendinga og misskilnings sem upp hefur komið, telja afkomendur Nonna og Mundu sig nauðbeygða að árétta að ofbeldið var ekki framið af Nonna, en hann var oftast kenndur við Álfadal þar sem hann bjó lengi. Hið rétta er að ofbeldismaðurinn var faðir þeirra Nonna og Sigurbjargar, Oddur Valgeir Gísli Guðmundsson.

Afkomendur Nonna og Mundu vonast til að útgáfa bókarinnar auki vitund lesenda og opni og styrki enn frekar umræðu og baráttu samfélagsins gegn kynferðisofbeldi, þöggun og meðvirkni.

Sævar Þór Jónsson, lögmaður, lrl, MBA

DEILA