Að hafa skoðun á fiskeldi og samgöngumálum

Rétt er að hvetja alla til að taka þátt í viðhorfskönnuninni sem send var í pósti á alla með lögheimili á Vestfjörðum um viðhorf þeirra til fiskeldis og samgöngumála en markmiðið er að fá fram væntingar og viðhorf Vestfirðinga.

.

Til að ná til sem flestra hefur verið farin sú leið að senda bréf til allra og hægt er að fara tvær leiðir til þáttöku. Fara á netslóðina sem fram kemur í bréfinu ásamt lykilorði eða að nota QR kóðann ásamt lykilorði en með þessum hætti er auðvelt að taka þátt í könnuninni.

Til að tryggja jafnræði íbúanna er könnunin á þremur tungumálum; íslensku, ensku og pólsku. Það er rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) sem sér um framkvæmd könnunarinnar fyrir hönd Vestfjarðastofu.

Með könnuninni gefst öllum íbúum Vestfjarða einstakt tækifæri til að láta skoðun sína í ljós á þessum tveimur málaflokkum sem hafa verið í brennidepli undanfarin ár.

Niðurstöður verða meðal annars nýttar í stefnumótun sveitarfélaga og svæðisins alls til hagsbóta fyrir íbúana.

DEILA