Uppskrift vikunnar: ofnbakaður lax með hvítlauk og sítrónum

Þessi uppskrift er alveg yndislega góð ef þið eruð á annað borð fyrir lax, er líka lítið mál að skipta laxinum út fyrir silung ef þið kjósið hann frekar.

Bragðgóður fiskur og fljótleg uppskrift.

Hráefni:

600 gr laxaflak

2 msk ósaltað smjör brætt

1/2 tsk sjávarsalt

1/4 teskeið svartur pipar

1 msk maukaður hvítlaukur

8 sneiðar sítróna

1 tsk söxuð steinselja

1 tsk saxað dill

Aðferð:

Hitið ofninn í 190 gráður. Leggið bökunarpappír á ofnplötu og setjið laxaflakið/flökin þar ofan á. Penslið helmingnum af bræddu smjöri á laxinn og kryddið hann með salti og pipar. Hellið síðan afgangnum af smjörinu yfir.

Dreifið hvítlauknum jafn yfir laxinn og raðið sítrónubátnum þétt í kringum fiskinn.

Bakið laxinn í c.a. 12 mínútur. Stillið síðan ofninn á grill og “grillið” laxinn í 3-4 mínútur eða þar til hann fer að gyllast aðeins og hvítlaukurinn að brúnast.

Takið hann úr ofninu og dreifið steinselju og dilli yfir fiskinn. Berið fram með sítrónusneiðunum sem ættu að vera orðnar ristaðar og góðar og uppáhalds meðlætinu ykkar. Mitt uppáhald eru hrísgrjón og ferskt salat.

Verði ykkur að góðu!

Halla Lúthersdóttir.

DEILA