Ný stjórn í Sorpsamlagi Strandasýslu og hækkun gjaldskrár

Sorpsamlag Strandasýslu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að ný stjórn hafi tekið við. Hana skipa Þorgeir Pálsson,sveitarstjóri Strandabyggðar, Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir, fulltrúi í sveitarstjórn Strandabyggðar og Finnur Ólafsson, oddviti Kaldrananeshrepps.

Í tilkynningunni kemur fram að Sorpsamlag Strandasýslu hafi glímt við rekstrarerfiðleika í nokkurn tíma. Ný stjórn segist munu „leita allra leiða til að snúa rekstri Sorpsamlagsins við og um leið að aðlaga reksturinn að þeim kröfum og lagalegu forsendum sem að sorphirðu lýtur í dag. Í því felst að breytingar verða gerðar á gjaldskrá Sorpsamlagsins og öllu rekstrarformi.“

Gert er ráð fyrir að ný gjaldskrá taki gildi 1. október næstkomandi.

Þá segir að Sorpsamlag Strandasýslu hafi verið brautryðjandi á Vestfjarðavísu hvað varðar aðgengi að flokkunarstöð og var og að þjónustustig sé mjög hátt. Áfram verði reynt að halda háu þjónustustigi, en breytt aðgengi og opnunartími Sorpsamlagsins eru til skoðunar.

„Það eru fáir söfnunarstaðir á landinu opnir allan sólarhringinn, allan ársins hring. Það má búast við breytingu á því fyrirkomulagi á næstunni.“

DEILA