HG: áhöfninni á Stefni sagt upp og útgerð skipsins hætt

Stefnir ÍS.

Ákveðið hefur verið að segja áhöfn skipsins Stefnis ÍS , sem telur 13 manns, upp frá og með áramótum.  Útgerðin mun leitast við að útvega þeim sem missa vinnuna störf á öðrum skipum félagsins eins og kostur er. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Hraðfrystihússins Gunnvör hf.

Þar kemur fram að úthlutað aflamark í þorski hafi dregist saman um 23% á síðustu tveimur fiskveiðiárum og dragast  aflaheimildir H-G hf. saman um 1.200 tonn við það. Einnig hefur orðið veruleg skerðing  í úthlutuðu aflamarki í gullkarfa, sem hefur verið mikilvæg tegund í útgerð Stefnis.  „Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að hætta útgerð Stefnis.  Með þeirri aðgerð mun rekstrargrundvöllur annarra skipa félagsins styrkjast.“

Stefnir ÍS 28 var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1976 fyrir Flateyringa og bar fyrst nafnið Gyllir ÍS 261.   Skipið var keypt til Ísafjarðar í ársbyrjun 1993 og hefur verið gert út frá Ísafirði í nær 30 ár og hefur útgerð skipsins gengið vel.

DEILA