Gunnar Kvaran og Jane Ade Sutarjo í Hömrum 8. október

Gunnar Kvaran og Jane Ade Sutarjo.

Fyrstu áskriftartónleikar Tónlistarfélagsins á Ísafirði á þessu starfsári verða í Hömrum, sal Tónlistarskólans, laugardaginn 8. október kl. 16. Nú er virkilega ástæða til að fá sér áskrift, en þar koma fram Gunnar Kvaran sellóleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari.

Þau flytja verk eftir Couperin, Beethoven, Chopin, Rachmaninoff og Schumann. Það má telja öruggt að enginn verði svikinn af þessari fallegu stund segir í tilkynningu tónlistarfélagsins um tónleikana.

Gunnar Kvaran hefur verið einn virtasti sellóleikari landsins í 50 ár og kennari u.þ.b. allra sellóleikara sem hafa verið í fararbroddi undanfarna áratugi, í Sinfóníuhljómsveitinni og annars staðar. Ekki síður er hann þekktur sem einstaklega næmur mannvinur. Honum fylgir sannarlega birta hvert sem hann fer!

Jane stundaði nám í Listaháskólanum, en hún er frá Indónesíu. Hún er eini nemandinn sem hefur lokið bæði einleikaraprófi á fiðlu og píanó. Jane bjó til að byrja með hjá Gunnari og Guðnýju og lærði íslensku með svo undraverðum hraða að fljótlega gátu samnemendur hennar ekki greint að hún ætti annað móðurmál.

Stofnfundur Tónlistarfélags Ísafjarðar var haldinn 20. maí 1948 á heimili Jónasar Tómassonar, bóksala, organista og tónskálds. Haldnir eru fernir áskriftartónleikar á hverju starfsári félagsins, en einnig stendur félagið fyrir ýmsum öðrum tónleikum, oft í samvinnu við aðra. 

Félagsgjald starfsársins 2019/2020 er kr. 7.500 og er aðgangseyrir að fernum áskriftartónleikum innifalinn í félagsgjaldinu.

Þeir sem vilja gerast félagar í Tónlistarfélaginu eru hvattir til að hafa samband við formanninn Steinþór B. Kristjánsson duik@simnet.is.

Stjórn félagsins skipa:

Steinþór B. Kristjánsson formaður, meðstjórnendur eru Jóngunnar Biering Margeirsson, Peter Weiss, Sigrún Pálmadóttir og Hildur Elísabet Pétursdóttir.

DEILA