UMFÍ tekur við rekstri Skólabúðanna að Reykjum

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, fráfarandi sveitarstjóri, Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ og Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skóla- og ungmennabúða

UMFÍ mun taka við rekstrinum frá næsta skólaári. Skólabúðir að Reykjum bætast við Ungmennabúðir UMFÍ á Laugarvatni. Um 3.200 nemendur í 7. bekk grunnskóla víða af landinu koma ár hvert í Skólabúðirnar.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra auglýsti í mars á þessu ári eftir samstarfsaðila um rekstur Skólabúðanna að Reykjum og sóttist UMFÍ eftir samstarfi við sveitarfélagið um rekstur þeirra.

 Í umboði Húnaþings vestra mun UMFÍ annast rekstur skólabúðanna en um 3.200 grunnskólabörn af öllu landinu sækja búðirnar á hverju skólaári. Í rekstrarsamningi kemur m.a. fram að í skólabúðunum sé unnið eftir Heimsmarkmiðum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og aðalnámskrá grunnskóla. Sérstök áhersla er lögð á uppeldis- og félagsleg markmið. Í skólabúðunum eru nemendur einnig kynntir fyrir sögu og atvinnuháttum á landsbyggðinni með skipulagðri safnakennslu í samstarfi við Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna.

Vonir standa til að undir dyggri stjórn UMFÍ muni starfsemi Skólabúðanna að Reykjum blómstra í fagurri náttúru Hrútafjarðarins og þeirri sögu sem firðinum fylgir.

DEILA