Samstarf við Grænlendinga um loðnurannsóknir

Rannsóknaskipið Tarajoq

Nýja grænlenska rannsóknaskipið Tarajoq er í Hafnarfjarðarhöfn þessa dagana, en það fer til loðnurannsókna á laugardaginn kemur. Þar verða meðal annarra, sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun um borð.

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun svo halda í leiðangur 5. september í þessum sameiginlegu loðnurannsóknum Íslendinga og Grænlendinga.

Markmiðið er að rannsaka útbreiðslu og magn ungloðnu og fullorðinnar loðnu ásamt því að kanna ástand vistkerfisins.

Niðurstöður loðnumælinganna verða lagðar til grundavallar að upphafsveiðiráðgjöf fyrir vertíðina 2023/24 sem og endurskoðaðri ráðgjöf fyrir næstkomandi vertíð. 

DEILA