Málstofa um Skrúð

Skrúður.

Ísafjarðarbær, Minjastofnun Íslands og Framkvæmdasjóður Skrúðs efna til málstofu um menningarminjar sem haldin verður sunnudaginn 7. ágúst n.k. og tileinkuð einum elsta skrúðgarði landsins, Skrúði í Dýrafirði.

Fjallað verður um fyrirhugaða friðlýsingu, einstök kennileiti garðsins og framtíðarhugmyndir.

Málstofan verður haldin í Bryggjusal – Edinborgarhúsinu á Ísafirði og hefst kl. 14:00

14:00 Setning: Sæmundur Þorvaldsson, fyrrv. Skrúðsbóndi, fundarstjóri
14:05 Ávarp: Nanný Arna Guðmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar
Ísafjarðabæjar
14:15 Pétur Ármannsson / Inga Sóley Kristjönudóttir, fulltrúar
Minjastofnunar Íslands, fjalla um fyrirhugaða friðlýsingu.
14:45 Einar E. Sæmundsen, landslagsarkitekt
Garðar – Lifandi minjar – 10 ár frá heimsókn Ítalanna í Skrúð. Sagt frá
verkefninu Garðar – lifandi minjar – og rifjað upp þegar Skrúður var
valinn til að hljóta Carlo Scarpa verðlaunin árið 2013.
15:15 Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjufræðingur og fyrrv. formaður
Garðyrkjufélags Íslands
Trjágróður í Skrúði m.a. í trúarlegu samhengi
15:45 Hafsteinn Hafliðason garðyrkjumaður
Skrúður – garðyrkjan
16:15 Gunnlaugur Björn Jónsson, arkitekt
Hlíð – heimili Sigtryggs og Hjaltlínu
16:45 Brynjólfur Jónsson, formaður Framkvæmdasjóðs Skrúðs
Framtíðarsýn – umhverfi Skrúðs
17:00 Fyrirspurnir og umræður

DEILA