Grunur um eldislax í á á Vestfjörðum

Matvælastofnun barst tilkynning síðastliðinn föstudag vegna laxa sem veiddir voru í á á Vestfjörðum en grunur er um að um eldislax sé að ræða.

Starfsmenn Fiskistofu og Matvælastofnunar fóru á staðinn og tóku sýni sem send voru til Hafrannsóknastofnunar til erfðagreiningar.

Atvikið er til meðferðar hjá Matvælastofnun, en frekari upplýsingar verða veittar þegar niðurstöður erfðagreiningar liggja fyrir.

DEILA