Óbreytt verð hjá Snerpu

Snerpa á Ísafirði er eitt af fyrirmyndarfyrirtækjunum á Vestfjörðum samkvæmt lista Viðskiptablaðsins í samstarfi við Kelduna. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Verðbólgan er um þessar mundir nærri 9% á ársgrundvelli. Ýmsar nauðsynjavörur hækka því hækka í verði. Það á einnig við um önnur útgjöld heimila svo sem netþjónustu og hafa fyrirtæki í þeim geira verið að kynna verðhækkanir á sinni þjónustu.

Míla kynnti nýverið verðhækkun sem tók gildi 1. júní. Verð á  heimtaugaverði ljósleiðara á landsbyggðinni hækkaði um 10% en á hækkun á sömu þjónustu á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri er um 3,3% Þá hækkar aðgangur að bitastraumskerfi Mílu um 4,5% á landsbyggðinni en um 2,2% á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.

Stóru fjarskiptafyrirtækin þrjú – Nova, Vodafone og Síminn hafa einnig tilkynnt verðhækkanir á sinni þjónustu sem taka gildi ýmist 1. maí sl., 1. júní eða í dag 1. júlí.

Snerpa hefur ákveðið að verðið á vinsælustu netþjónustunni sem er Heimilispakkinn verði óbreytt. Í tilkynningu á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að á meðan aðstæður breytast ekki til verri vegar sé til skoðunar frekar hvort verð fyrir aðrar áskriftarleiðir þurfi að breytast.

Verð á áskriftarleiðum og aðgangsgjaldi Snerpu hefur ekki hækkað síðan í nóvember árið 2015.

DEILA