Malbikað á Tálknafirði í ágúst

Í  byrjun ágúst 2022 verður malbikunarflokkur á vegum Colas Ísland við malbikunarframkvæmdir á Tálknafirði.

Fulltrúar fyrirtækisins vilja koma því á framfæri að þeir geta bætt við sig verkefnum á sunnanverðum Vestfjörðum þá daga sem þeir verða með tæki, tól og efni á svæðinu.

Best er að hafa samband beint við Colas Ísland í síma 565-2030 til að fá nánari upplýsingar eða senda tölvupóst.

DEILA