Bætt hefur verið úr frágangi efnis í uppfyllingu vegar á Hólmavík og gengið snyrtilega frá því að sögn Þorgeirs Pálssonar, sveitarstjóra.
Ætlunin var að nýta efnið sem fellur til vegna niðurrifs söluskála N1 á Hólmavík til uppfyllingar í veg innan bæjar í þorpinu. Þorgeir staðfestir að farist hafi fyrir að umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar gefi út framkvæmdaleyfi fyrir breikkun vegarins en úr því verði bætt á næsta fundi nefndarinnar. Þorgeir segir ljóst, í skýringum sem hann gefur á vefsíðu Strandabyggðar, að verktaki hafi verið „í góðri trú að nýta afganga í hagræðingar- og sparnaðarskyni í undirlag fyrir breikkun á vegi, líkt og gert hefur verið áður. Búið er að ganga vel og snyrtilega frá þessari viðbót á veginum, eins og myndin sýnir. Var þetta gert í samráði við heilbrigðisfulltrúa.“
Hann segir í Strandabyggð vera einn skilgreindur urðunarstaður sem er á sorphaugum sveitarfélagsins. Því er ekki hægt að tala um urðun innanbæjar í þessu tilviki heldur nýtingu á steypuafgöngum sem undirlag í breikkun vegar.