Fasteignafélag Þingeyrar: kynnir hugmynd að sjósundaðstöðu

Kjartan Ingvarsson og Óttar Gíslason, fyrir hönd Fasteignafélags Þingeyrar ehf., mættu í vikunni til fundar við skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar til að kynna hugmyndir um sjósundaðstöðu á Þingeyri.

Skipulags- og mannvirkjanefnd fagnaði hugmyndum Fasteignafélags Þingeyrar og fól skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. Ekki hafa verið birtar nánari upplýsingar um kostnað og fjármögun en sjá má af teikningum að um stórhuga hugmyndir um sjósund og sjóböð er að ræða sem ætlaðar eru til þess að draga að ferðamenn.

DEILA