Úkraínska kammersveitin Kyiv Soloists ásamt einleikurum frá Bolungarvík í Hörpu

Tónleikar úkraínsku kammersveitarinnar Kyiv Soloists ásamt gestaleikurum frá Íslandi fara fram þriðjudaginn 5. júlí kl. 19:30 í Eldborgarsal Hörpu.

Úkraínska kammersveitin Kyiv Soloists samanstendur af úkraínsku tónlistarfólki sem hefur sigrað úkraínskar og alþjóðlegar tónlistarkeppnir.

Í ársbyrjun 2022 fór hljómsveitin í tónleikaferð um Evrópu og á Ítalíu fékk hún fréttir af innrás rússneskra hermanna í Úkraínu. Allt breyttist og það var ekki lengur mögulegt að snúa aftur heim til Úkraínu. Í samvinnu við leiðandi tónleikahaldara í Evrópu var tónleikaferð Kyiv Soloists framlengd um óákveðinn tíma.

„Við spilum fyrir friði í Úkraníu“, segja þau.

Kyiv Soloists leikur úkraínska tónlist undir stjórn Erki Pehk og á efnisskránni eru þessi verk:

M. Berezovsky: Sinfónía í C-dúr
A. Shymko: Dreams of an old forest fyrir strengjasveit (2004-2005)
P. Kacha: Úkraínskt þjóðlag, úts.Viktor Rekalo
V. Silvestrov: Silent music

Einleikarar á þessum tónleikum verða þeir Oliver Rähni sem leikur píanókonsert nr. 1 eftir Weber og Selvadore Rähni með klarinettukonsert nr. 1 eftir Weber.

Kyiv Soloists koma til landsins á vegum Tónlistarhátíðarinnar Miðnætursólar sem Tónlistarskóli Bolungarvíkur stendur fyrir ásamt Bolungarvíkurkaupstað.

Auk tónleikanna í Hörpu verða tónleikar í Bolungarvík 30 júní.

DEILA