Þyrlusveit LHG fimm sinnum kölluð út

Nokkuð var um annir hjá Landhelgisgæslunni um hvítasunnuhelgina.

Þyrlusveit stofnunarinnar var til að mynda kölluð fimm sinnum út. Á laugardag var snjósleðamaður sóttur í Skálpanes, austur af Langjökli en hann hlaut áverka þegar hann velti snjósleða sínum. Maðurinn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi.

Á hvítasunnudag var slösuð göngukona sótt í hlíð ofan við Súðavík og var komið undir læknishendur í Reykjavík.

Laust fyrir miðnætti á Hvítasunnudag var óskað eftir þyrlu til Vestmannaeyja vegna veikinda. Sökum þoku á flugvellinum í Eyjum var ekki unnt að senda sjúkraflugvél og því var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan lenti á Hamrinum og flutti sjúklinginn til Reykjavíkur. Auk þess voru tvö útköll afturkölluð.

DEILA