Styðjum Úkraínu – Tónleikar í Hörpu og Árbæ

Úkraínska kammersveitin Kyiv Soloists (National Chamber Ensemble „Kyiv Soloists“) samanstendur af úkraínsku tónlistarfólki sem hefur sigrað úkraínskar og alþjóðlegar tónlistarkeppnir.

Í ársbyrjun 2022 fór hljómsveitin í tónleikaferð um Evrópu og á Ítalíu fékk hún fréttir af innrás rússneskra hermanna í Úkraínu. Allt breyttist og það var ekki lengur mögulegt að snúa aftur heim til Úkraínu. Í samvinnu við leiðandi tónleikasamtök í Evrópu var tónleikaferð Kyiv Soloists framlengd um óákveðinn tíma.

„Við spilum fyrir friði í Úkraníu“, segja þau.

Kyiv Soloists koma til landsins á vegum Tónlistarhátíðarinnar Miðnætursólar sem Tónlistarskóli Bolungarvíkur stendur fyrir ásamt Bolungarvíkurkaupstað.

Tónleikar úkraínsku kammersveitarinnar Kyiv Soloists ásamt gestaleikurum frá Spáni og Íslandi fara fram fimmtudaginn 30. júní 2022 kl. 19:30 í Íþróttahúsinu Árbæ í Bolungarvík og þriðjudagur 5. júlí kl. 19:30 í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík.

Tónleikarnir eru styrktartónleikar fyrir Úkraínu.

Miðasala á tix.is

DEILA