Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið hefur farið fram árlega síðan 2011.
Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.
Keppnisgreinar á mótinu eru: Boccía, bridds, frjálsar íþróttir, golf, götuhlaup (Flandrasprettur, sem er opin grein fyrir fólk á öllum aldri), hestaíþróttir, göngufótbolti, körfubolti (3:3), pílukast, pútt, pönnukökubakstur, ringó, skák, stígvélakast, sund og utanvegahjólreiðar sem skiptast í hefðbundnar fjallahjólreiðar og keppni fyrir rafhjól (opin grein fyrir 18 ára og yngri).