AÐALFUNDUR VERK VEST VEITIR RKÍ STYRK

Bergljót Halldórsdóttir og Finnbogi Sveinbjörnsson. Mynd: verkvest.is

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga samþykkti að svara ákalli frá verkalýðsfélögum í Úkraínu og nágrannaríkjum þeirra um stuðning í orðum og verki. Stjórn Verk Vest lítur á það sem samfélagsskyldu félagsins að veita stríðshrjáðum flóttamönnum aðstoð og lagði því til við aðalfund félagsins að veita styrk til Rauðakross Íslands (RKÍ). Félagar á aðalfundi samþykktu að veita RKÍ 500.000 kr. til aðstoðar við flóttafólk frá Úkraínu.

Bergljót Halldórsdóttir, formaður Rauðakrossdeildarinnar á Ísafirði veitti styrknum móttöku og sagði að fjármunirnir myndu nýtast vel hér á svæðinu þar sem hingað væri þegar kominn nokkur fjöldi flóttafólks frá Úkraínu. ASÍ, SGS og fjöldi stéttarfélaga hefur áður samþykkt veita fé til hjálparstarfs tengdu móttöku flóttamanna frá Úkraínu.

DEILA