Teigskógur: Skrifað undir verksamning vegna vegagerðar

Frá undirskriftinni í dag. Mynd: Vegagerðin.

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Óskar Sigvaldason framkvæmdastjóri Borgarverks skrifuðu undir verksamning í húsakynum Vegagerðarinnar í dag 10. maí. Verkið snýst um vegaglagningu frá þverun Þorskafjarðar að vegamótum við Djúpafjörð m.a. um Teigsskóg. Kaflinn er um 10 km og verkinu á að vera lokið síðsumars á næsta ári. 

Borgarverk átti lægsta tilboðið 1.235 m.kr. sem var 196 m.kr. undir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.

„Það er verulega gleðilegt að skrifa undir þennan verksamning,“ sagði Bergþóra við undirskriftina. „Þetta er gríðarlegur góður áfangi að koma þessu af stað, en kaflinn um í Gufudalssveitinni hefur veirð flöskuháls fyrir byggðarlögin á sunnanverðum Vestfjörðum.“ Óskar sagði að Borgarverk myndi hefjast handa þann 24. maí og að byrjað yrði á því að koma sér fyrir. „Okkur líst vel á þetta verk og búumst ekki við neinum deilum, ekki núna þegar búið er að taka ákvörðun um vegagerðina,“ sagði Óskar. „Ég á ekki von á öðru en góðri samvinnu við heimamenn. Þetta er spennandi verkefni.“

Verkið felst í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 10,4 km kafla, milli stöðva 4.400 og 14.800.

Vegurinn er að alfarið byggður í nýju vegstæði en tengist núverandi Vestfjarðavegi í annan endann. Í verkinu felst einnig nýbygging Djúpadalsvegar á um 0,2 km kafla, milli stöðva 0 og 210. Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegstæði en tengist nýjum Vestfjarðavegi í annan endann og nýjum Djúpadalsvegi sem er í byggingu í hinn endann.

Útlögn efra lags klæðingar skal lokið 15. ágúst 2023.

Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2023. 

DEILA