Nýr dýralæknir á Vestfjörðum

Matvælastofnun hefur greint frá því að Helga Sigríður Viðarsdóttir dýralæknir hefur með samningi við Mast tekið að sér að sinna almennri dýralæknaþjónustu hjá eigendum búfjár sem og eigendum gæludýra á Vestfjörðum frá og með 28. maí n.k. Á Ísafirði mun hún starfrækja Dýralæknastofu Helgu s. 8965205. Helga Sigríður tekur við af Sigríði Ingu Sigurjónsdóttur dýralækni, sem sinnt hefur Vestfjörðum um árabil. Stofnunin  þakkar Sigríði Ingu hennar störf og bíður Helgu Sigríði velkomna til starfa.

DEILA