Lífslíkur á Íslandi með þeim mestu í Evrópu

Meðalævilengd karla á Íslandi var 80,9 ár árið 2021 og meðalævilengd kvenna 84,1 ár en meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans.

Aldursbundin dánartíðni hefur lækkað á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um. Frá árinu 1988 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum í meðalævilengd.

Á tíu ára tímabili (2011–2020) var meðalævi lengst í Sviss eða 83,3 ár. Fast á hæla þeirra komu Spánn (83,1) og Ítalía (83,0). Liechtenstein og Ísland voru í fjórða til fimmta sæti í Evrópu með ævilengd upp á 82,7 ár. Styst var meðalævilengd karla í Úkraínu (72,2), Hvíta-Rússlandi (73,3) og Georgíu (73,8).

DEILA