Páska-kökubasar í Bolungarvík

Páska-kökubasar Kvenfélagsins Brautarinnar í Bolungarvík stendur frá kl. 16-17 miðvikudaginn 13. apríl 2022 í Félagsheimili Bolungarvíkur.

Nú er lag að verða sér úti um góðgæti fyrir páskana hjá kvenfélagskonum í Bolungarvík.

Háfleygar rjómatertur, dúnmjúkar súkkulaðikökur, dásamlegar perutertur og svo margt fleira.

Viltu þú gleðja elskuna þína? Takmarkað magn, fyrstur kemur, fyrstur fær.

Athugið að það er ekki greiðslu-posi á staðnum.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

Kveðja frá kvenfélagskonum Brautarinnar.

DEILA