Leikfélag Hólmavíkur setur upp farsann Bót og betrun eftir Michael Cooney, í leikstjórn Sigurðar Líndals.
Frumsýnt verður á páskadag kl. 20:00 og eru allar sýningar í Sævangi.
Verkið gerist í London og fjallar um Eric Swan, sem hefur verið duglegur að svíkja út bætur síðustu tvö árin. Hann ætlar sér þó að minnka svindlið, en þá vindur það upp á sig með sífellt skrautlegri afleiðingum. Inn í málið flækjast meðal annars leigjandinn hans, sambandsráðgjafi og útfararstjóri, ásamt ýmsum öðrum.
Þeir tíu leikarar sem leika eru allt frá því að vera nýliðar á fjölunum, yfir í gamlar kempur innan leikfélagsins. Æfingar hófust í lok janúar og hafa gengið merkilega vel þrátt fyrir ótal plágur og flensur sem leggjast á landann þessi misserin!
Eitt af helstu einkennum Leikfélags Hólmavíkur hafa verið leikferðir út um hvippinn og hvappinn. Því miður er ekki víst hvort hægt verði að komast í slíka í ár, og því við hvetjum alla til að mæta í Sævang og upplifa alvöru skemmtun á Ströndum!




Hægt er að fylgjast með leikfélaginu á leikholm.is, Instagram @leikfelagholmavíkur og á Facebook!