Ísafjarðarhöfn: 860 tonna afli í mars

Stefnir ÍS í Ísafjarðarhöfn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Ísfisktogararnir Stefnir ÍS og Páll Pálsson ÍS fóru 5 veiðiferðir hvor í síðasta mánuði. Stefnir ÍS landaði 392 tonnum og Páll Pálsson ÍS var með 344 tonn. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson RE landaði 74 tonnum og Vörður ÞH fór eina veiðiferð og var með 49 tonn.

Handfærabáturinn Bjartmar ÍS kom með 848 kg eftir einn róður.

DEILA