Hátíðartónleikar í Hömrum á sunnudag – ókeypis aðgangur

Ísfirsku bræðurnir Maksymilian Haraldur, Mikolaj Ólafur og Nikodem Júlíus Frach eru komnir eins og aðrir vorboðar. Margir munu hafa hug á að hlusta á þessa eftirlætisnemendur í Tónlistarskólanum um árabil, en þeir stunda nú nám í Póllandi. Þeir halda hátíðartónleika í Hömrum n.k. sunnudag 1. maí kl. 16.
Sérstakur gestur á tónleikum verður Piotr Tarcholik, konsertmeistari NOSPR.
Aðgangur er ókeypis en það verða frjáls framlög í hljóðfærasjóð tónlistarmanna.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

DEILA