Bleikjueldi og 7 sumarbústaðir í Kaldrananeshreppi

Ásmundarnes

Kynningarfundur vegna breytinga á aðalskipulagi Kaldrananeshrepps 2010-2030 og nýs deiliskipulags í landi Ásmundarness verður haldinn á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði miðvikudaginn 13. apríl nk. kl. 16:00.

Aðalskipulagsbreytingin varðar breytingu á landnotkun á hluta jarðarinnar Ásmundarness þar sem gert er ráð fyrir 3,8 ha frístundabyggð og 5,3 ha iðnaðarsvæði fyrir landeldi á svæði sem er skilgreint landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi.

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir frístundabyggð fyrir sjö frístundahús til skammtíma útleigu og iðnaðarsvæði fyrir landeldi á bleikju á hluta skipulagssvæðisins með nýrri vélaskemmu og klakhúsi.

Auk þess er gert ráð fyrir nýbyggingu íbúðarhúss og nýjum byggingarreit á íbúðarsvæði.

DEILA