Stækkun hjúkrunarheimilisins Eyrar á Ísafirði – framkvæmdir hefjast í haust

Hjúkrunarheimilið Eyri og Sjúkrahúsið á Ísafirði í bakgrunni

Hjúkrunarrýmum á Ísafirði fjölgar um tíu með viðbyggingu við hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði. Samningur heilbrigðisráðuneytisins og Ísafjarðarbæjar um framkvæmdina hefur verið undirritaður. Framkvæmdir hefjast í haust. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tekið í notkun snemma árs 2024. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er rúmar 550 milljónir króna og greiðir ríkissjóður 85% kostnaðarins á móti 15% bæjarfélagsins.

Það er virkilega ánægjulegt að undirrita samning eins og þennan sem felur í sér aukna og bætta þjónustu við þá einstaklinga í hópi aldraða sem þurfa mestrar umönnunar við. Ég veit að þetta er kærkomin viðbót fyrir íbúa á þessu svæði“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sem greindi frá undirritun samningsins þegar hann ávarpaði ársfund Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sl. föstudag.

Hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði er nýlegt en það var tekið í notkun árið 2015. Heimilið var byggt fyrir 30 íbúa en við hönnun þess gert ráð fyrir möguleika á frekari stækkun í framtíðinni fyrir tíu íbúa, líkt og nú hefur verið ákveðið. Stækkunin er í samræmi við áætlaða þörf fyrir fjölda hjúkrunarrýma á svæðinu og forgangsröðun verkefna samkvæmt framkvæmdaáætlun um byggingu hjúkrunarrýma til ársins 2024.

Hjúkrunarheimilið Eyri er á einni hæð og stendur við hlið sjúkrahúss Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er tengigangur á milli bygginganna. Í því eru þrír tíu herbergja kjarnar sem hver og einn tengist sameiginlegu þjónusturými hjúkrunarheimilisins. Viðbyggingin mun tengjast miðrýminu á svipaðan hátt þar sem íbúar njóta félagsstarfs, iðjuþjálfunar og annarrar þjónustu. Hönnun og skipulag heimilisins er byggð á þeirri hugmyndafræði sem fram kemur í opinberum viðmiðum um skipulag og starfsemi hjúkrunarheimila. Áhersla er lögð á að skapa aðstæður sem líkjast eins og kostur er húsnæði, skipulagi og aðstæðum á einkaheimilum fólks, í vistlegum umhverfi þar sem mannréttindi, mannúð og virðing eru í heiðri höfð.

Unnið er að fullnaðarhönnun viðbyggingarinnar. Áformað er að framkvæmdir geti hafist á þriðja ársfjórðungi þessa árs í kjölfar útboðs og að taka megi heimilið í notkun snemma árs 2024.

DEILA