Loftlagsváin kallar á aukna græna raforkuframleiðslu

Í síðustu viku kom út skýrsla um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum. Í henni er gerð grein fyrir orkuþörf þjóðarinnar með vísan til áherslna og markmiða stjórnvalda í loftlagsmálum. Í skýrslunni er einnig er farið yfir stöðuna á flutningskerfinu og orkumarkaði, framboði og eftirspurn á raforku sem og hvernig fyrirséð er að þau mál geta þróast næstu mánuði og ár.

Skýrslan er ítarleg og við lestur hennar má sjá að lögð er til grundvallar vinna sem fram kom í Orkustefnu Íslands til ársins 2050 sem unnin var af þverpólitískri nefnd á síðastliðnu kjörtímabili. Þar kemur fram að það sé mikilvægt markmið í baráttunni við loftslagsvánna að orkuskipti fari fram í lofti, láði og legi. Við á Íslandi höfum þá sérstöðu að nánast ekkert jarðefnaeldsneyti er notað við raforkuframleiðslu og húshitun. Það er öfundsverð staða sem okkur ber að viðhalda.

Háleit markmið í loflagsmálum

Til þess að geta staðið við háleit markmið okkar í loftlagsmálum verðum við að skoða af fullri alvöru að horfa á að auka raforkuframleiðslu Þá þurfum við ekki bara að auka framleiðsluna heldur verðum við einnig að bæta flutningsleiðir þar sem flutningstakmarkanir á raforku eru verulegar á milli landsvæða. Staðan í þeim efnum er sérstaklega slæm á Vestfjörðum og á norðausturhorni landsins. Þegar horft er til kerfisáætlunar Landsnets um styrkingu meginflutningskerfis á Vestfjörðum er hún á langtímaáætlun en í allt of fjarlægri framtíð. Þá er betra að huga frekar að valkostum á virkjunum innan svæðis til að tryggja raforkuöryggi á Vestfjörðum.

Orkuskipti á Vestfjörðum

Árið 2017 var samþykkt á Alþingi þingsályktunartillaga um aðgerðaráætlun um orkuskipti. Þar er vörðuð leið með það að markmiði að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa. Með orkuskiptum verði enn fremur stuðlað að aukinni nýsköpun og sjálfbærri þróun. Í aðgerðaáætluninni er talað um hagræna hvata fyrir neytendur og fyrirtæki við val á vistvænni tækni og orkugjöfum.

Verkefnið Blámi er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og Vestfjarðastofu. Markmið Bláma er að ýta undir og styðja við orkuskipti í samgöngum og sjávartengdum iðnaði ásamt því að efla nýsköpun á sviði orkunýtingar, eins og

segir á heimasíðu verkefnisins. Ýmsar raunhæfar hugmyndir hafa litið dagsins ljós. Orkuskipti í sjávarútvegi er enn á hugmyndastigi því eru tækifærin mörg.

Smábátaútgerð á Vestfjörðum er tilvalin til að ýta á stað tilraunaverkefni í orkuskiptum. Yfirleitt er stutt á miðin og úthaldið því styttra í hverjum róðri. Hægt væri að beita hagrænum hvötum í þessum efnum. Línuívilnun hefur dregist verulega saman á Vestfjörðum og hægt væri að hugsa sér orkuívilnun þess í stað sem rynni til þeirra sem nýttu vistvæna orku. Þeir fengju aflaívilnun sem byggði á svipuðum grunni og línuívilnun. Þá má hugsa fleiri hagræna hvata til að flýta fyrir orkuskiptum rétt eins og er verið að gera í orkuskiptum í samgöngum.

Það þarf að framleiða meiri raforku

En staðreyndin er sú að til þess að hægt sé að fara í orkuskipti af alvöru þá vantar rafmagn inn á svæðið, það verður að auka raforkuframleiðslu. Raforka er forsenda þess að uppbygging atvinnu, samfélaga og orkuskipta verði á svæðinu. Án þess getur fjórðungurinn ekki tekið þátt í loftlagsmarkmiðum stjórnvalda.

Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknar

DEILA