Í-listinn í Ísafjarðarbæ

Á myndinni eru frá vinstri, Gylfi, Nanný, Magnús, Sigríður Júlía og Arna Lára.

Listi Í-listans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí var samþykktur einróma á félagsfundi sem haldinn var í gær.

Á listanum er fólk sem hefur komið víða við í samfélaginu og er tilbúið að leggja sitt af mörkum við að gera Ísafjarðarbæ að samfélagi þar sem hugað er að velferð og tækifærum til framtíðar.

Að Í-listanum standa nú Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Viðreisn auk óháðra. Í-listinn bauð fyrst fram árið 2006 og hefur átt fjóra bæjarfulltrúa á yfirstandandi kjörtímabili.

Listinn er þanig skipaður.

1. Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Ísafirði.

2. Nanný Arna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Borea Adventures og bæjarfulltrúi. Ísafirði.

3. Magnús Einar Magnússon, innkaupastjóri Skagans 3X á Ísafirði. Flateyri.

4. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, sviðsstjóri hjá Skógræktinni, bóndi og frumkvöðull. Önundarfirði.

5. Arna Lára Jónsdóttir, svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum og bæjarfulltrúi. Ísafirði.

6. Þorbjörn Halldór Jóhannesson, fyrrum bæjarverkstjóri Ísafjarðarbæjar og bóndi. Arnardal.

7. Finney Rakel Árnadóttir, þjóð- og safnafræðingur og sérfræðingur hjá Byggðasafni Vestfjarða. Ísafirði.8.

Guðmundur Ólafsson, sjávarútvegsfræðingur og fóðrari hjá Arctic Fish. Þingeyri.

9. Kristín Björk Jóhannsdóttir, grunnskólakennari. Þingeyri

10. Valur Richter húsasmíða- og pípulagnameistari. Ísafirði.

11. Jónína Eyja Þórðardóttir, umsjónarmaður verslunar Lyfju. Önundarfirði.

12. Einar Geir Jónasson, starfsmaður á leikskóla. Ísafirði.

13. Þórir Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður og bæjarfulltrúi. Ísafirði.

14. Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, verkefnisstjóri í móttöku flóttafólks. Ísafirði.

15. Wojciech Wielgosz, framkvæmdastjóri Partex og bifvélavirki hjá Vegagerðinni.

16. Inga María Guðmundsdóttir, athafnakona Ísafirði.

17. Halldóra Norðdahl, kaupmaður og frumkvöðull. Ísafirði.

18. Guðmundur Magnús Kristjánsson, hafnarstjóri. Ísafirði.

DEILA