Háskóladagurinn á Ísafirði

Langar þig í háskólanám? Ef svarið er já, þá viltu ekki missa af þessu einstaka tækifæri. 

Háskóladagurinn verður með kynningu í Menntaskólanum á Ísafirði 24. mars kl. 10:30 – 12:30.

Þá gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér allt grunnháskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi. 

Nemendur og starfsfólk allra háskóla landsins verða tilbúin til að spjalla við þig. Um að gera að nýta tækifærið og spyrja um hvaðeina sem lýtur að drauma náminu og eiga samtal um námsleiðirnar og háskólalífið.

DEILA