BJÚGTANNI

Bjúgtanni er miðsævis-, djúp- og úthafsfiskur, dökkrúnn eða svartleitur á lit og verður um 18 cm langur. 

Hann lifir á ýmiskonar krabbadýrum og fiskum, en verður oft öðrum fiskum að bráð. Dökkur litur hans gerir hann allt að því ósýnilegan í myrkri undirdjúpanna. Lítið er vitað um hrygningartíma bjúgtanna hér við land. 

Bjúgtanni fannst fyrst á Íslandsmiðum árið 1973 en heimkynni hans eru víðfeðm um öll heimsins höf. Við Ísland veiðist hann oftast á um 600-1300 metra dýpi.

Af vefsíðunni hafogvatn.is

DEILA