Teigsskógur: útboðið auglýst

Vegagerðin óskar í dag eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar í Þorskafirði á um 10,4 km kafla og um 0,2 km kafla á Djúpadalsvegi milli Þórisstaða og Hallsteinsness.

Um er að ræða vegagerð sem að hluta til liggur um hinn umdeilda Teigsskóg. Skilafrestur tilboða er til 22. mars kl 14 og verða tilboðin opnuð í framhaldinu.

DEILA