Met slegið í ölduhæð

Öldumælingardufl við Ísland

Vegagerðin rekur um 11 öldumælingaduflum í kringum Ísland og einnig vefupplýsingakerfið um veður og sjólag, www.sjolag.is

Á vefnum er hægt að finna mælda kenniöldu frá duflunum en kennialda er meðaltal af hæstu öldum yfir hvert mælitímabil sem varir í 30 mínútur.

Öldumælingardufl við Garðskaga mældi ítrekað öldur yfir 30 m í óveðrinu sem gekk yfir landið síðdegis þann 7, febrúar og aðfaranótt mánudags 8. febrúar. Fyrra met í ölduhæð við Ísland var síðan árið 1990 á sama dufli. Ein aldan var svo kröftug að mælirinn sló út en hann mælir mest 40 m ölduhæð og því óvíst hversu há sú alda var.

Heppilegt var að lágstreymt var og sjávarstaða því hagstæð. Fyrir þetta veður hafði ölduspá gerði ráð fyrir að um væri að ræða stór atburður sem gæti leitt til þess að mjög háar öldur nái landgrunni. Líkur voru á því að ölduhæð gæti náð sömu hæðum og voru mældar þann 9. janúar 1990 þegar Garðskagaduflið mældi 25 m háa staka öldu, sem er sú hæsta sem mælst hefur við strendur Íslands. 

Þar sem það var lágstreymt og sjávarstaða því hagstæð var fyrirséð að öldur myndu ekki valda miklum skemmdum á mannvirkjum þar sem þær brotna langt fyrir utan grynningarnar.

DEILA