Ísfirðingurinn Helga Margrét í framboð í Reykjavík

Helga Margrét Marzellíusardóttir hefur tilkynnt um framboð sitt fyrir næstu borgarstjórnarkosningar sem verða í vor. Gefur hún kost á sér í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Helga er 33 ára, fædd á Ísafirði en búið í Reykjavík í seinni tíð. Helga er með bachelor gráðu í kórstjórn og söng frá Listaháskóla Íslands og er nú í mastersnámi í kórstjórn við Konunglega danska tónlistarháskólann.

Helga er tónlistarkona og starfar sjálfstætt sem slík auk þess að starfa sem kórstjóri Hinsegin kórsins.

Í framboðstilkynningu hennar segir:

„Ég hef nú um tíma búið í þessari höfuðborg. Hér hef ég menntað mig sem tónlistarmaður, alið upp dætur mínar og stundað mína list undanfarin ár.

Reykjavík er frábær en getur orðið betri, og mig langar að leggja mitt af mörkum þar. Mig langar að taka þátt í að skapa betri borg fyrir okkur öll. Vegna þess gef ég kost á mér í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum.

Framundan eru spennandi tímar í Reykjavík. Borgin er að vaxa hratt og þrátt fyrir tilraunir núverandi meirihluta til að ýta fyrirtækjum og fólki yfir til nágranna sveitarfélaganna, vill fólk búa hér. Í því felast ónýtt tækifæri.

Á næsta kjörtímabili vil ég sjá Sjálfstæðisflokkinn taka við stjórn borgarinnar og unga konu í borgarstjórastóli. Ég vil sjá flokkinn leggja áherslu á að koma leikskólamálum borgarinnar í rétt horf. Ég vil sjá borgina taka listakennslu í leik- og grunnskólastarfi alvarlega á ný og styðja af alvöru við starf tónlistarskóla. Ég vil sjá borgina taka hlutverk sitt sem einn stærsti einstaki eigandi fasteigna á Íslandi af festu. Og ég mun tryggja að borgin geri mannréttindabaráttu að forgangsatriði á borði, en ekki bara í orði.

Höfuðborgin á að vera leiðandi í sköpun raunverulegra valkosta í samgöngum. Vettvangur nýsköpunar í menntamálum og menningu. Borgin á að taka hlutverki sínu sem höfuðborg alvarlega og vera stolt af því að þúsundir skuli sækja þjónustu þangað á hverjum degi. Til þess þarf að ljúka því stríði sem vinstri meirihlutinn hefur undanfarið háð gegn úthverfum borgarinnar og sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins.

Reykjavík verður að vera höfuðborg allra.“

DEILA