Ísafjarðarbær: Óásættanlegt að kynda þurfi með olíu

Ísafjörður. Horft yfir Skutulsfjarðareyrina. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar fékk Elías Jónatansson, orkubússtjóra til fundar í gær til viðræðna um orkumál í fjórðungnum, en orkuskerðing til fjarvarmaveitna þau áhrif að Orkubú Vestfjarða þarf að brenna olíu svo hægt sé að kynda hús á Vestfjörðum.

Í bókun bæjarráðs segir:

„Það er óásættanlegt að Vestfirðir þurfi að búa við það að enn í dag þurfi að kynda húsnæði með orku sem fæst frá díselolíu. Þrátt fyrir háværar raddir frá bæjarfulltrúum, atvinnulífinu og Vestfjarðarstofu undanfarin ár, um nauðsyn þess að byggja upp nútímalega og örugga innviði rafmagns, hafa hvorki ríkisstjórnir né Landsvirkjun brugðist við með áætlun í takt við nútímann og alþjóðaskuldbindingar.

Ríkisstjórn sem hefur sett sér metnaðarfull markmið í loftslagsmálum á ekki að sætta sig við að heill landsfjórðungur þurfi að reiða sig á díselolíu til húshitunar á köldustu mánuðum ársins og þegar skerðing verður á flutningi rafmagns inn í fjórðunginn. Við gerum þá sjálfsögðu kröfu að tekin verði ákvörðun um að byggja upp og styrkja grænan orkubúskap á Vestfjörðum í stað þess að einblína á ódýrasta kostinn og gamaldags lausnir. Á það skal bent að Vestfirðingar tóku þátt í uppbyggingu raforkukerfis alls landsins á sínum tíma.“

Í bókuninni tekur bæjarráð einnig undir með stjórn Vestfjarðastofu sem hefur lýst yfir áhyggjum af þeim afleiðingum sem breyttar rekstrarforsendur hafa á rekstur og fjárfestingagetu Orkubús Vestfjarða og kallar eftir því að stjórnvöld og Landsvirkjun tryggi að kostnaður vegna þessarar stöðu falli ekki aðeins á íbúa og atvinnulíf á Vestfjörðum.

DEILA