Handbolti: leik Harðar enn frestað

Bikarleik Harðar gegn toppliði Olísdeildarinnar sem vera átti í kvöld hefur enn verið frestað.

Hörður mætir FH, toppliði Olísdeildarinnar á miðvikudaginn 23 febrúar í 16-liða úrslit Coca Cola bikarsins. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og verður spilað þangað til sigurvegari fæst.

Upprunalega átti þessi leikur að fara fram síðasta miðvikudag eða 16. febrúar en vegna covid smita hjá báðum liðum þá hefur honum verið frestað í annað skipti, í það fyrra var honum frestað frá miðvikudeginum til föstudagsins 18 febrúar.

Eftir leik helgarinnar hjá Herði þar sem þeir unnu feykisterkt lið ÍR 30-27 í æsispennandi leik, þá eru strákarnir í Herði tilbúnir í næstu áskorun.

Búast má við hörku leik þar sem bæði lið berjast upp á laust sæti í 8-liða úrslitum. Það lið sem vinnur þennan leik fær spræka Þórsara frá Akureyri í heimsókn í 8-liða úrslitum bikarsins.

Fjölmennum á Torfnes á miðvikudaginn og styðjum strákana okkar til sigurs. Grípum tækifærið að sjá strákana okkar spila gegn besta liði landsins um þessar mundir. Ekki á hverjum degi sem að Olísdeildarlið koma vestur til að spila en vonandi breytist það í náinni framtíð.

DEILA