Handbolti: Hörður mætir FH í bikarkeppni á morgun, miðvikudag

Hörður mætir toppliði Olísdeildarinnar á miðvikudaginn í 16-liða úrslit Coca Cola bikarsins. Leikið er á Ísafirði og hefst leikurinn klukkan 18:00 og verður spilað þangað til sigurvegari fæst.

Eftir leik helgarinnar hjá Herði þar sem þeir unnu feykisterkt lið ÍR 30-27 í æsispennandi leik, þá eru strákarnir í Herði tilbúnir í næstu áskorun.

Búast má við hörku leik þar sem bæði lið berjast upp á laust sæti í 8-liða úrslitum. Það lið sem vinnur þennan leik fær spræka Þórsara frá Akureyri í heimsókn í 8-liða úrslitum bikarsins.

Fjölmennum á Torfnes á miðvikudaginn og styðjum Hörð til sigurs. Grípum tækifærið að sjá strákana spila gegn besta liði landsins um þessar mundir. Ekki á hverjum degi sem að Olísdeildarlið koma vestur til að spila, en vonandi breytist það í náinni framtíð.

DEILA